Foreldramorgunn miðvikudaginn 1. febrúar

Foreldrar með ungabörn:
Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 9 – 10:30 (athugið breytta tímasetningu) í Safnaðarheimili kirkjunnar, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Foreldramorgnar eru stundir fyrir foreldra ungra barna til að hittast og spjalla saman og fyrir börnin að hitta önnur ung börn.
Boðið er upp á kaffi/te og létt nasl.

Gæðastund þriðjudaginn 31. janúar

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 31. janúar kl. 13:30-15. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Reykjavíkurprófastsdæmi eystra flytur erindi sem ber yfirskriftina “Táknfræði kirkjurýmisins” og verður táknfræði kirkjurýmis Háteigskirkju skoðuð.

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 24. janúar sl. (Sr. Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur flutti áhugavert erindi um pílagrímaferðir) og af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi fyrir alla).

Sunnudagur 29. janúar – Fjórði sunnudagur eftir þrettánda.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Systurnar Björney og Þórdís Emelía Aronsdætur leika tvíleik á fiðlur og Clementina Lucia Sinis leikur einleik á orgel. Mikill almennur söngur undir stjórn organistans Guðnýjar Einarsdóttur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni og djús að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Mynd: Frá fjölskylduguðsþjónustu í Háteigskirkju þann 26. desember sl.

Gæðastund þriðjudaginn 24. janúar

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju næstkomandi þriðjudag 24. janúar kl. 13:30-15. Sr. Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Pílagrímastarf og -ferðir”.

Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.

(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 17. janúar sl. (Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður flutti erindi) og af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð).

Heildardagskrá Gæðastunda vormisseris 2023 verður kynnt innan tíðar.

Messa kl. 11:00, 22. 01

Messa í Háteigskirkju sunnudaginn 22. janúar, sem er 3. sd. eftir þrettánda.

Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju leiða messusönginn.

Kaffisopi og spjall eftir messu.

2. sunnudagur eftir þrettánda – 15. janúar 2023.

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur.  Organisti er Arngerður María Árnadóttir.  Heitt á könnunni að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl.11:00 8. janúar


Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju leiða messusöng.
Kaffisopi í safnaðarheimili eftir messu.

Helgihald í Háteigskirkju um jól og áramót

21. desember

Tónleikar kl. 21:12

Guðný Einarsdóttir og Jón Hafsteinn Guðmundsson leika jólatónlist fyrir trompet og orgel. Aðgangur ókeypis.

 

Aðfangadagur, 24. desember

Aftansöngur kl. 18

Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Margrét Hannesdóttir, sópran syngur einsöng. Örnólfur Kristjánsson, sellóleikari og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, fiðluleikari leika jólatónlist á undan guðsþjónustunni. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir.

 

Jóladagur, 25. desember

Hátíðarmessa kl. 14

Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Alrún María Skarphéðinsdóttir leikur á píanó á undan guðsþjónustunni. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir.

 

Annar í jólum, 26. desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Orgelkrakkar og Barna- og unglingakór Háteigskirkju flytja  jólaleikrit. Teitur Magnússon, tónlistarmaður syngur og leikur á gítar. Orgelkrakkar leika á orgel. Mikill almennur söngur. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir.

 

Gamlársdagur, 31. desember

Aftansöngur kl. 18

Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Peter Tompkins leikur á óbó. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir.

 

Nýársdagur, 1. janúar 2023

Hátíðarmessa kl. 14

Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Organisti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir

Sunnudagur 18. des. fjórði sunnudagur í aðventu

Messa kl. 11. Kirkjudagur Háteigskirkju.

Prestur er Eiríkur Jóhannsson

Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir

Félagar úr Kordíu kór Háteigskirkju leiða messusöng.

Kaffisopi og spjall eftir messu.

Kl. 20 Aðventusöngvar við kertaljós. Aðventukvöld Háteigskirkju

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flytur hugvekju. Tónlistarhópurinn Umbra flytur tónlistaratriði. Kordía kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista kirkjunnar. Prestar: Eiríkur Jóhannsson og Helga Soffía Konráðdóttir. Léttar veitingar að athöfn lokinni.

Sunnudagur 11. desember – Þriðji sunnudagur í aðventu.

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur.  Heitt á könnunni að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.