
Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Organisti er Arngerður María Árnadóttir.
Kammerkórinn Huldur syngur undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar.
Kaffispjall í safnaðarheimili eftir messu.
Komið og farið, bæði sæl og blessuð.

Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Organisti er Arngerður María Árnadóttir.
Kammerkórinn Huldur syngur undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar.
Kaffispjall í safnaðarheimili eftir messu.
Komið og farið, bæði sæl og blessuð.
Foreldrar með ungabörn:
Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 8. febrúar kl. 9 – 10:30 (athugið breytta tímasetningu skv. samráði við foreldra ungabarna). Við hittumst í Safnaðarheimili kirkjunnar (norðurinngangur), í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Foreldramorgnar eru stundir fyrir foreldra ungra barna til að hittast og spjalla saman og fyrir börnin að hitta önnur ung börn í hlýlegu umhverfi með litrík þroskaleikföng.
Boðið er upp á kaffi/te og létt nasl.

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 7. febrúar kl. 13:30-15. Þórarinn Þórarinsson arkítekt flytur erindi sem ber yfirskriftina “Leitin að hinu heilaga grali á Íslandi”.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 31. janúar sl. þegar Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra flutti fróðlegt erindi um táknfræði kirkjurýmisins ásamt leiðsögn um Háteigskirkju þar sem táknfræði kirkjurýmisins var skoðuð. Einnig er mynd af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi er fyrir alla.






Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju leiða messusöng. Kaffispjall í safnaðarheimili eftir messu.
Foreldrar með ungabörn:
Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 9 – 10:30 (athugið breytta tímasetningu) í Safnaðarheimili kirkjunnar, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Foreldramorgnar eru stundir fyrir foreldra ungra barna til að hittast og spjalla saman og fyrir börnin að hitta önnur ung börn.
Boðið er upp á kaffi/te og létt nasl.


Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju á morgun þriðjudag 31. janúar kl. 13:30-15. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Reykjavíkurprófastsdæmi eystra flytur erindi sem ber yfirskriftina “Táknfræði kirkjurýmisins” og verður táknfræði kirkjurýmis Háteigskirkju skoðuð.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 24. janúar sl. (Sr. Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur flutti áhugavert erindi um pílagrímaferðir) og af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð, aðgengi fyrir alla).





Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Systurnar Björney og Þórdís Emelía Aronsdætur leika tvíleik á fiðlur og Clementina Lucia Sinis leikur einleik á orgel. Mikill almennur söngur undir stjórn organistans Guðnýjar Einarsdóttur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni og djús að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund í Háteigskirkju næstkomandi þriðjudag 24. janúar kl. 13:30-15. Sr. Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Pílagrímastarf og -ferðir”.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í Safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndir frá góðri Gæðastund í Háteigskirkju þann 17. janúar sl. (Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður flutti erindi) og af norðurinngangi Safnaðarheimilis kirkjunnar þar sem Gæðastundir fara fram í veislusal á 2. hæð).
Heildardagskrá Gæðastunda vormisseris 2023 verður kynnt innan tíðar.





