Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Við fáum góða gesti sem er Valskórinn undir stjórn Báru Grímsdóttur, munu þau leiða messusönginn. Kaffi og kex í boði eftir messu.
Messa kl. 11 16.sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju leiða messusöng. Þriðjudagur 4. októberkl. 13:30 Gæðastund, samvera eldri borgara. Söngur, fróðleikur, gæðakaffi, gefandi samvera.
Sunnudaginn 25. september kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í Háteigskirkju. Mikill söngur, leynigestur og orgelfjör! Prestur er sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson Organisti er Guðný Einarsdóttir
ORGELKRAKKAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 25. SEPTEMBER til 1. OKTÓBER
DAGSKRÁ 25. september
kl. 11 Fjölskylduguðsþjónusta í Háteigskirkju Upphaf hátíðar, orgelkynning og leynigestur
1. október
kl. 12 til 17 Fjölskyldutónleikar og smiðjur í Hallgrímskirkju
Ókeypis er á orgelhátíðina og allir eru velkomnir, stórir sem smáir. Fyrir utan auglýsta dagskrá er nemendum 2. bekkjar í grunnskólum Reykjavíkur boðið á sýningar á tónlistarævintýrinu Lítil saga úr orgelhúsi í þremur kirkjum í Reykjavík, Fella- og Hólakirkju, Grafarvogskirkju og Hallgrímskirkju á skólatíma.
Orgelkrakkahátíðin er styrkt af Barnamenningarsjóði, Tónlistarsjóði og Þjóðkirkjunni.
Þetta er 14. sunnudagur eftir þrenningarhátíð og guðspjallið að þessu sinni fjallar um það kraftaverk Jesú þegar hann læknaði 10 líkþráa menn. Prestur er Eiríkur Jóhannsson Organisti er Guðný Einarsdóttir Félagar úr Kordíu kór Háteigskirkju syngur. Auk þess mun María Qing Sigríðardóttir spila á selló við messuna.
Gæðastundir hefjast að nýju á þriðjudaginn 20. september kl. 13:30
Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Heitt á könnunni og djús eftir messu. Verið öll hjartanlega velkomin.
Messa í Háteigskirkju á sunnudaginn kemur, þann 28. ágúst kl.11. Prestur verður sr. Eiríkur Jóhannsson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Marta Kristín Friðriksdóttir leiðir söng og syngur einsöng. Kaffi og djús á ganginum eftir messu.