Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju – Opnun í dag, fimmtudag 1. júní, kl. 15-18:

SUMARSMELLUR
Gallerí Göng
Kristín Tryggvadóttir

Fimmtudaginn 1. júní kl 15-18 opnar Kristín Tryggvadóttir myndlistarkona einkasýningu sína undir yfirskriftinni, SUMARSMELLUR , í Gallerí Göngum.

Kristín er Kópavogsbúi og er með vinnustofu þar. Hún var félagi í Anarkíu Listasal, síðar Gallerí GÁTT. Hún er kennari frá KHÍ, stundaði nám við Handíða og Myndlistaskólann, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Kópavogs og fór í námsferðir til Danmerkur og Ítalíu.

Kristín, er í SÍM, Íslenskri grafík og Vatnslitafélagi Íslands, og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hérlendis og í Danmörku, Ítalíu, New York, Svíþjóð, Bretlandi og Finnlandi.

Verk Kristínar á sýningunni spegla áhuga hennar á birtunni, árstíðunum og síbreytilegri náttúrunni. Hún hefur næmt auga fyrir litbrigðum landsins og leik ljóss og skugga.

Sýningin stendur yfir frá 1. júní fram í miðjan júlí 2023.
Opnunartími er þriðjudagur til fimmtudags kl 10 – 16 og á föstudögum frá 10 – 15. Helgaropnanir eru nánar auglýstar á facebook síðu eða eftir samkomulagi.
Símanúmer Kristínar er 8992264,
kristintr@simnet.is, www.artkristin.com, Art Kristín

Gallerí Göng er tengibyggingin milli Háteigskirkju og Safnaðarheimilisins. Gengið er inn að norðanverðu, eða þar sem gengið er inn í Safnaðarheimilið.