Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 6. október, kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Bára Friðriksdóttir, verkefnastjóri eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma eystra og vestra, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Öldrunarfræði – að eldast vel”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
