Fyrsta GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2024 verður þriðjudaginn 17. september kl. 13:30-15

Fyrsta GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2024 verður þriðjudaginn 17. sept. kl. 13:30 til 15. Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona og málari og Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina “Rímnaskáldið Sigurður Breiðfjörð”. Að venju verður boðið upp á ljúffengar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin!  Hlökkum til að sjá ykkur aftur! (Heildardagskrá haustsins verður auglýst síðar).

Sunnudagur 1. september

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur.  Organisti er Erla Rut Káradóttir.  Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Háteigskirkja verður 60 ára 2025 !

Háteigskirkja verður 60 ára 2025 !
Sóknarnefndin vinnur að því að sinna löngu tímabæru viðhaldi kirkjunnar í tilefni afmælisársins, meðal annars málun kirkjunnar að utan og innan, viðgerðum á innanstokksmunum og fleiru. Smelltu á vefslóðina: https://hateigskirkja.is/styrkir/ fyrir nánari upplýsingar ef þú vilt styrkja Háteigskirkju í tilefni af afmælisárinu. Safnast þegar saman kemur og öll framlög eru afar mikilvæg og hjartanlega þökkuð.
 
Háteigskirkja will be 60 years old in 2025 !
The Parish Committee is working to take care of the long overdue maintenance of the church on the occasion of the anniversary year, such as painting the church, both exterior and interior, repairs to the interior, and other important projects. For more information if you would like to donate to Háteigskirkja for the anniversary projects go to our website: https://hateigskirkja.is/styrkir/ . No matter how small, all contributions are very important and greatly appreciated.

Sunnudagur 25. ágúst 2024

Messa kl. 11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Vænst er þátttöku fermingarbarna vorsins 2025 og forráðamanna þeirra. Skráning í fermingarfræðslu vetrarins. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 18. ágúst

Messa kl. 11:00.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti er Erla Rut Káradóttir.  Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 11. ágúst

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti er Arngerður María Árnadóttir.  Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin

Sunnudagur 21. júlí

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 14. júlí

Messa kl. 11:00. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!

Sunnudagur 7. júlí

Fermingarmessa kl. 11:00. Sr. Inga Harðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Níu börn verða fermd. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Rebekka Ingibjartsdóttir sópran syngur. Heitt á könnunni í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!

Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju, sýningaropnun fimmtudaginn 4. júlí kl. 16-18:

————————————————
Verið öll hjartanlega velkomin á opnun á sýningunni SAMFLÆÐI.
Fimmtudaginn 4. júlí kl 16-18 opna þær Erla Halldórsdóttir og María Loftsdóttir myndlstasýningu í Gallerí Göngum, Háteigskirkju. Erla og María hafa báðar stundað myndlistina í mörg ár. Þær hafa lagt stund á nám í myndlistarskólum og sótt námskeið innanlands og erlendis. Báðar hafa þær sýnt á samsýningum og María hefur haldið fjölda einkasýninga bæði innanlands og erlendis m.a í Japan.
Erla vinnur verk sín í dag að mestu leyti í akrýl og með blandaðri
tækni. María vinnur bæði með olíu, akrýl og vatnslitum.
Verkin á þessari sýningu eru unnin í akrýl, með blandaðri tækni og
vatnslitum.
Þær sækja innblástur í náttúruna og umhverfið,
en hver með sínum augum, tilfinningu, og litapallettu.
Þetta er þeirra fyrsta samsýning.
Fyrri myndin: Erla Halldórsdóttir myndlistarkona
Seinni myndin: María Loftsdóttir myndlistarkona