Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 29. september, kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Hreinn Hákonarson, ritstjóri Kirkjublaðsins, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Kirkjulistamaðurinn Benedikt Gunnarsson” en Benedikt gerði meðal annars hinar mikilfenglegu altarismósaíkmynd og mósaíkmynd Maríualtaris Háteigskirkju. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
