Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin. (Myndin sem fylgir er af brúðhjónum og gestum eftir eina af mörgum fallegum hjónavígslum í Háteigskirkju í sumar, birt með leyfi brúðhjónanna.)
Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Fimmtudaginn 1. júní kl 15-18 opnar Kristín Tryggvadóttir myndlistarkona einkasýningu sína undir yfirskriftinni, SUMARSMELLUR , í Gallerí Göngum.
Kristín er Kópavogsbúi og er með vinnustofu þar. Hún var félagi í Anarkíu Listasal, síðar Gallerí GÁTT. Hún er kennari frá KHÍ, stundaði nám við Handíða og Myndlistaskólann, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Kópavogs og fór í námsferðir til Danmerkur og Ítalíu.
Kristín, er í SÍM, Íslenskri grafík og Vatnslitafélagi Íslands, og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hérlendis og í Danmörku, Ítalíu, New York, Svíþjóð, Bretlandi og Finnlandi.
Verk Kristínar á sýningunni spegla áhuga hennar á birtunni, árstíðunum og síbreytilegri náttúrunni. Hún hefur næmt auga fyrir litbrigðum landsins og leik ljóss og skugga.
Sýningin stendur yfir frá 1. júní fram í miðjan júlí 2023. Opnunartími er þriðjudagur til fimmtudags kl 10 – 16 og á föstudögum frá 10 – 15. Helgaropnanir eru nánar auglýstar á facebook síðu eða eftir samkomulagi. Símanúmer Kristínar er 8992264, kristintr@simnet.is, www.artkristin.com, Art Kristín
Gallerí Göng er tengibyggingin milli Háteigskirkju og Safnaðarheimilisins. Gengið er inn að norðanverðu, eða þar sem gengið er inn í Safnaðarheimilið.
“Sticks ‘n’ Strings – with friends”, hópur ungra Suzuki strengjahljóðfæranema frá Danmörku og Íslandi, ásamt píanói, verða með tónleika í Háteigskirkju næstkomandi sunnudag 21. maí kl. 15:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
“The concert group is a youth string orchestra -with piano- with Suzuki students from Denmark and Iceland playing together. The name of the group is: „Sticks ‘n’ Strings -with friends“
Útvarpsmessa Ríkisútvarpsins í gær sunnudaginn 14. maí, Hinn almenna bænadag og Mæðradag, var tekin upp í Háteigskirkju. Hlekkur til að hlusta á messuna er hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/gudsthjonusta/24228/7hi3je Séra Eiríkur Jóhannsson predikaði og þjónaði fyrir altari. Organisti, píanóleikari og kórstjóri var Guðný Einarsdóttir. Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukór, barna- og unglingakór Háteigskirkju sungu. Baldur Smárason las ritningarlestra. FYRIR PREDIKUN: Forspil: Dagur austurloft upp ljómar. Lag: Stefán Arason. Texti: Þórarinn Jónsson. Sálmur 732: Mill líf er eins og lag. Lag og texti: Robert Lowry. Íslenskur texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Sálmur 261: Drottinn, miskunna, miskunna þú oss. Lag: G.M. Kolisi. Texti úr Biblíunni. Sálmur 270: Dýrð þér, dýrð þér. Lag og texti: Pablo Sosa. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson. Sálmur 280. Við heyrum Guðs heilaga orð. Lag: Fintan O’Carill og Christopher Walker. Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Kórsöngur: Sálmurinn um fuglinn. Lag og texti: Olga Guðrún Árnadóttir. EFTIR PREDIKUN: Kórsöngur: Þú sem himninum ræður. Lag: Stefán Arason. Texti: Lisbeth Smedegaard-Andersen. Íslenskur texti: Guðný Einarsdóttir. Sálmur 319: Þú sem líf af lífi gefur. Lag: Johann Crüger. Texti: Hjálmar Jónsson. Kórsöngur: Drottinn er minn hirðir. Lag: Björn Önundur Arnarson. Sálmur nr. 23. 766 Nú skrúða grænum skrýðist fold. Lag: Walsemar Åhlén. Texti: Carl D. av Wirsén. Íslenskur texti: Karl Sigurbjörnsson. Eftirspil: Birting, Arngerður María Árnadóttir
Foreldramorgnum á vormisseri í Háteigskirkju er nú lokið og verða þeir aftur í boði í haust, en þá munum við einnig bjóða upp á Krílasálma, sem er tónlistarupplifunarnámskeið fyrir yngstu börnin og foreldra. Dagsetningar og tími verður auglýst í sumarlok. Hlökkum til að sjá ykkur í haust, njótið sumars og sólar !
Sunnudagurinn 14. maí – Hinn almenni bænadagur. Messa kl. 11:00. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Ari Jóhann Ingu- Steinunnarson leikur einleik á orgel. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur. Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður haldinn í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Uppstigningardagur, dagur aldraðra í kirkjunni, fimmtudaginn 18. maí. Messa kl. 14:00. Séra Eiríkur Jóhannsson þjónar fyrir altari, Séra Tómas Sveinnsson fyrrverandi sóknarprestur Háteigsprestakalls flytur prédikun. Eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur annast messusönginn undir stjórn Arons Axels Cortes. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Léttar kaffiveitingar eftir messu.
Háteigskirkja Aðalsafnaðarfundur Háteigssóknar verður haldinn sunnudaginn 14. maí n.k, að lokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 11:00. Fundurinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar. Dagskrá – venjuleg aðalfundarstörf. Allir hjartanlega velkomnir. Sóknarnefnd Háteigskirkju
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Vigdís Kristjánsdóttir, 8 ára nemandi í Vesturbæjarskóla, leikur einleik á orgel. Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Kaffi, kex og djús í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Foreldrar með ungabörn: Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 26. apríl kl. 9:00 – 10:00 í Safnaðarheimili kirkjunnar (norðurinngangur, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Kaffi, spjall og leikföng fyrir börnin að skoða.