Foreldrar með ungabörn:
Verið hjartanlega velkomin á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 9 – 10:30 (athugið breytta tímasetningu) í Safnaðarheimili kirkjunnar, í Setrinu – kaffistofurými á 1. hæð, gengið strax til hægri inn á stuttan gang þegar komið er inn í Safnaðarheimilið). Foreldramorgnar eru stundir fyrir foreldra ungra barna til að hittast og spjalla saman og fyrir börnin að hitta önnur ung börn.
Boðið er upp á kaffi/te og létt nasl.

