Fyrsti sunnudagur í aðventu – 29. nóvember

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Barn tendrar ljós á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Kári Allansson. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Mynd RH: Meðfylgjandi mynd sýnir altari Háteigskirkju með mósaíkmynd Benedikts Gunnarssonar í fullri stærð. Framkvæmdir standa nú yfir í Háteigskirkju og hefur altarið verið fjarlægt úr kórnum um stundarsakir. Má því líta hina fögru altarismynd Benedikts í heild sinni nú í fyrsta sinn í áratugi og verður hún væntanlega ekki sýnileg í heild sinni aftur í áratugi héðan í frá.