Fjölskyldusamvera í safnaðarheimili Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 9. apríl kl. 17-18:30

Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU í safnaðarheimili Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 9. APRÍL kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Um er að ræða síðustu fjölskyldusamveruna á þessu vormisseri. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!