Sunnudagur 3. nóvember

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Drengjakór Reykjavíkur syngur, stjórnandi er Þorsteinn Freyr Sigurðsson og meðleikari er Laufey Sigrún Haraldsdóttir. Veitingar í safnaðarheimili að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Að lokinni fjölskylduguðsþjónustu stendur sóknarnefnd Háteigskirkju fyrir viðburðinum „Jól í skókassa“ í safnaðarheimili kirkjunnar, sjá tilkynningu hér: https://hateigskirkja.is/jol-i-skokassa-2024-i…/

JÓL Í SKÓKASSA 2024 – í Háteigskirkju næstkomandi sunnudag 3. nóv. kl. 12:20-14:30 að lokinni fjölskylduguðsþjónustu

Næstkomandi sunnudag 3. nóvember kl. 12:20 til 14:30 að lokinni fjölskylduguðsþjónustu mun Háteigskirkja leggja sitt af mörkum fyrir verkefnið Jól í skókassa sem KFUM og KFUK standa fyrir og gengur út á að útbúa jólagjafir handa munaðarlausum börnum í Úkraínu, sjá nánar hér:

Öllum áhugasömum gefst kostur á að koma saman í safnaðarheimili kirkjunnar að lokinni fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 3. nóvember næstkomandi og útbúa gjafir í kassana. Falleg og gefandi samverustund fyrir fjölskyldur og alla sem áhuga hafa. Hver kassi þarf að innihalda amk einn hlut úr hverjum af eftirfarandi fimm flokkum:

1) LEIKFÖNG (t.d. lítill bíll eða dúkka …)

2) SKÓLADÓT (t.d. penni, blýantur …)

3) HREINLÆTISVARA (t.d. tannbursti, sápa …)

4) SÆLGÆTI (t.d. sleikjó, karamellur …)

5) FÖT (t.d. sokkar, húfa …)

Kirkjan útvegar skókassa (þó takmarkað magn svo að gott er að taka kassa með) og merkimiða, gjafapappír, einnig eitthvað af hreinlætisvörum og sælgæti (án endurgjalds) til að setja í kassana. Þátttakendur koma með leikföng, skólavörur, hreinlætisvörur, sælgæti og föt sem hæfa aldri og kyni þeirra barna sem þau ætla að útbúa kassann sinn fyrir.

Efst í hvern kassa þarf að leggja 500-1000 kr. seðil sem er fyrir kostnaði verkefnisins og eru þátttakendur beðnir um að hafa það meðferðis líka. Kirkjan sér um að koma tilbúnum jólakössum til KFUM og KFUK á Íslandi, sem sjá um að koma gjöfunum til barna í Úkraínu.

Við hvetjum ykkur öll til að taka þátt!

May be an image of text that says 'JÓL í SKÓKASSA í HÁTEIGSKIRKJU Sunnudaginn 3. nóvember kl. 12.20 14.30 Viš hittumst eftir fjölskylduguöspjónustu fjölskyl og útbúum saman skókassa sem sendir verda börnum í Úkraínu. Pátttakendur eru bešnir um a6 koma meő hluti kassana pótt einnig verđi ýmislegt til aA setja kassana á stağnum. Ηνa fer kassana? •Hreinlaetisvörur (sápa, tannbursti, tannkrem) Leikföng (t.d. bolti, dúkka eda bangsi) •Skóladót (t.d. stílabakur, litir, strokleğur) •Fatnağur (t.d. sokkar, húfa e6a vettlingar) •Saelgaeti (t.d. pez, hlaup eča tyggjó) 500 -1.000 kr. fyrir sendingarkostnadi'

Gæðastund á morgun þriðjudag 29. okt. kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun þriðjudag 29. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Árni Hjartarson, jarðfræðingur flytur erindi með yfirskriftinni „Vatnsvígslur og helgir brunnar Guðmundar góða“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).

Gæðastund eldri borgara næstkomandi þriðjudag 29. október kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 29. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Árni Hjartarson, jarðfræðingur flytur erindi með yfirskriftinni „Vatnsvígslur og helgir brunnar Guðmundar góða“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).

Sunnudagur 27. október

Messa kl. 11. Sr. Þorvaldur Víðisson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra setur sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur inn í embætti prests við Háteigsprestakall. Sr. Ása Laufey prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur. Kári Hilmarsson, drengjasópran syngur einsöng og félagar úr Perlukórnum syngja undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Kordía, kór Háteigskirkju leiðir almennan safnaðarsöng og organisti er Erla Rut Káradóttir. Veitingar í safnaðarheimili að messu lokinni í boði sóknarnefndar. Verið öll hjartanlega velkomin.
(Mynd fylgir af sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur)

Gæðastund eldri borgara á morgun, þriðjudag 22. okt. kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun þriðjudag 22. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Við spilum saman KONFEKTBINGÓ á ljúfum nótum. Vinningarnir eru konfektöskjur með ljúffengu súkkulaði. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).

Gæðastund eldri borgara næstkomandi þriðjudag 22. okt kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 22. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Við spilum saman KONFEKTBINGÓ á ljúfum nótum. Vinningarnir eru konfektöskjur með ljúffengu súkkulaði. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).

Sunnudagur 20. október 2024

.Messa kl. 11:00. Dagur heilbrigðisþjónustunnar. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin

Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju um sýningaropnun næstkomandi sunnudag 20. október, kl. 14-17:


____________________________________________________________

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningar Jóhönnu V Þórhallsdóttur, sem haldin verður í Gallerí Göngum, Háteigskirkju, á sunnudaginn 20. október, milli kl 14-17. Sýningin ber heitið Haustfiðringur. 10 ár eru síðan Jóhanna hélt sína fyrstu einkasýningu, Þögli kórinn sem var í Listasal Anarkíu í Kópavogi. Hún hefur síðan haldið amk eina einkasýningu á ári. Jóhanna nam myndlist á Íslandi og í Þýskalandi og hefur jafnframt unnið til heiðursverðlauna í Austuríki fyrir verk sín. Sýningin HAUSTFIÐRINGUR var að mestu unnin í sumar í Suður-Þýskalandi.

Gæðastund eldri borgara á morgun, þriðjudag 15. okt. kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 15. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Magnús Skúlason, arkítekt og fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins flytur erindi sem ber yfirskriftina “Innsýn í íslenska byggingararfleifð – 2. hluti”. Að venju verður boðið upp á ljúffengar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).