Sunnudagur 26. janúar – þriðji sunnudagur eftir þrettánda

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í sal safnaðarheimilis Háteigskirkju á 2. hæð (ath. kirkjan sjálf er lokuð vegna lagfæringa í jan.-mars). Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Fjölskyldusamvera á morgun miðvikudag 22. janúar kl. 17-18:30

Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU í safnaðarheimili Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 22. JANÚAR kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!

Gæðastund eldri borgara á morgun, þriðjudag 21. janúar kl. 13:30-15

Minnum á fyrstu GÆÐASTUND eldri borgara á vormisseri 2025 á morgun, þriðjudag 21. janúar kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sr. Elínborg Sturludóttir, Dómkirkjuprestur, flytur erindi sem ber yfirskriftina: Ólafía Jóhannsdóttir „Móðir Teresa norðursins“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Gæðastund eldri borgara næstkomandi þriðjudag 21. janúar kl. 13:30-15

Fyrsta GÆÐASTUND eldri borgara á vormisseri 2025 verður næstkomandi þriðjudag 21. janúar kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sr. Elínborg Sturludóttir, Dómkirkjuprestur, flytur erindi sem ber yfirskriftina: Ólafía Jóhannsdóttir „Móðir Teresa norðursins“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 19. janúar – annar sunnudagur eftir þrettánda

Messa kl. 11 í sal Safnaðarheimilis Háteigskirkju á 2. hæð (ath. kirkjan sjálf er lokuð vegna lagfæringa í jan.-mars). Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Raddbandafélag Reykjavíkur syngur undir stjórn Egils Gunnarssonar. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

May be an image of temple and twilight

Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju – viltu vera með?

Perlukór Háteigskirkju er frábær kór með flottum krökkum 12 ára og eldri. Kórinn hefur farið í ferðalög, haldið tónleika og gert tónlistarmyndband en einnig brallað margt annað skemmtilegt, farið á skauta, keilu, haldið bingó og margt fleira. Perlukórinn getur bætt við sig röddum en margt spennandi er framundan í starfinu. Æfingar eru á mánudögum kl. 18:45-20:00 og kostar ekkert.

Stjórnandi kórsins er Guðný Einarsdóttir. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í starfinu má endilega hafa samband við Guðnýju á netfangið gudnyei@gmail.com

Fjölskyldusamvera á morgun, miðvikudag 15. janúar kl. 17-18:30

Minnum á fyrstu FJÖLSKYLDUSAMVERU á nýju ári 2025, í Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 15. JANÚAR kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!

Tilkynning frá Gallerí GÖNGum í Háteigskirkju, um sýningaropnun næstkomandi laugardag 18. janúar kl. 14-16

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun sýningar Sigurðar Magnússonar í Gallerí GÖNGum , Innrím, laugardaginn 18. janúar kl. 14-16. Boðið verður upp á léttar veitingar! Sýningin stendur til 16. febrúar.

Sigurður lauk MA námi í listmálun frá Central Saint Martins College of Art og Design, University of the Arts London 1996. Áður hafði hann lokið Diploma-námi í Goldsmiths, University of London 1994 og námi frá MHÍ 1991. Atvinnuvegir á Íslandi eins og sjávarútvegur og orkuiðnaður hafa verið viðfangsefni í verkum Sigurðar. Eins er samband manns og náttúru algengt stef í myndum hans. Hann hefur sýnt bæði heima og erlendis. Sigurður sýnir nú abstrakt expressjónísk olíumálverk með skírskotun til lita, forma og áferðar í náttúrunni.

Sunnudagur 12. janúar

Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. VINSAMLEGAST ATHUGIÐ: Messan fer fram í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju þar sem kirkjan er nú lokuð vegna viðhaldsvinnu út mars. Gengið er inn í safnaðarheimilið um glerdyr frá bílastæði norðanmegin við Háteigskirkju, á ská gegnt gamla Stýrimannskólanum (sjá meðfylgjandi mynd af inngangi). Lyfta er í safnaðarheimilinu og aðgengi fyrir alla. Verið öll hjartanlega velkomin.

Tilkynning um lokun Háteigskirkju í byrjun árs 2025 vegna viðhalds- og málningarvinnu

Unnið verður að viðhaldi og málun Háteigskirkju í janúar 2025 í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar sama ár. Af þessum sökum verður Háteigskirkja lokuð frá og með 7. janúar út mars 2025 á meðan unnið er að málun að innan. Safnaðarheimili kirkjunnar verður opið eins og venjulega og helgihald flyst þangað, í veislusal á 2. hæð. Safnaðarheimilið er staðsett á bak við kirkjuna (gengið er inn um glerdyr norðanmegin, frá bílastæði á ská gegnt gamla Stýrimannaskólanum). Gæðastundir eldri borgara, Fjölskyldusamverur og Bænastundir sem haldnar hafa verið í safnaðarheimilinu haldast óbreyttar á meðan kirkjan er lokuð. Unnið verður að málun kirkjunnar að utan á vordögum, sem mun ekki hafa áhrif á opnun hennar.
Fyrsta messan 2025 í safnaðarheimili Háteigskirkju verður þann 12. janúar 2025 kl. 11.
Verið velkomin!