Minnum á aðventusöngva við kertaljós og gott kaffi á eftir, í kvöld, sunnudagskvöld 15. desember kl. 20 í Háteigskirkju. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir, flytur hugvekju. Jólaleg og falleg stund. Verið öll hjartanlega velkomin!

Minnum á aðventusöngva við kertaljós og gott kaffi á eftir, í kvöld, sunnudagskvöld 15. desember kl. 20 í Háteigskirkju. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir, flytur hugvekju. Jólaleg og falleg stund. Verið öll hjartanlega velkomin!
Annar sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á öðru kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Barn verður borið til skírnar í messunni. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU í Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 4. DESEMBER kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin! (Um er að ræða síðustu fjölskyldusamveruna á þessu ári. Fyrsta fjölskyldusamvera á árinu 2025 verður miðvikudaginn 15. janúar og verður hún auglýst nánar síðar).
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 3. desember kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor spila létt lög og jólalög á saxófón og gítar og segja jólasögu. Um er að ræða síðustu Gæðastund á þessu misseri. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin!
Hlökkum til að sjá ykkur! (Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2025 verður auglýst síðar).
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 3. desember kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor spila létt lög og jólalög á saxófón og gítar og segja jólasögu. Um er að ræða síðustu Gæðastund á þessu misseri. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur! (Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2025 verður auglýst síðar).
Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Perlukórinn syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur og Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Menningarviðburðir í Háteigskirkju á aðventu 2024. Verið hjartanlega velkomin ! (Sjá Almanak Háteigskirkju fyrir helgihald um jól og áramót 2024 hér: https://hateigskirkja.is/almanak-hateigskirkju-sidhaust…/).