HÁTEIGSKIRKJA verður  60 ÁRA – hlúum að Háteigskirkju

Háteigskirkja var vígð á aðventu 1965 af þáverandi biskupi Íslands Sigurbirni Einarssyni. Kirkjan var fagurlega hönnuð af Halldóri H. Jónssyni arkítekt og hefur hún frá upphafi verið prýði umhverfis síns og dáð af heimamönnum og gestum. Frá ársbyrjun 2025 hafa sóknarnefnd, prestar og starfsfólk kirkjunnar lagt árherslu á tímabærar endurbætur Háteigskirkju innandyra og utandyra, m.a. málun og ýmsar viðgerðir. Framkvæmdirnar eru kostnaðarsamar og stendur sóknarnefnd því fyrir fjáröflun til að standa undir þessum endurbótum og leitar til allra velunnara fallegu kirkjunnar okkar. Sjá meðfylgjandi auglýsingu: