Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 9. apríl kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður, flytja erindi sem ber yfirskriftina “Listin og lífið”. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð. (Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 19. mars en þá flutti Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, fyrri hluta erindis sem ber yfirskriftina “Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.“. Steinunn flytur seinni hluta erindisins á Gæðastund þriðjudaginn 16. apríl.)
Dagskrá Gæðastunda eldri borgara á vormisseri 2024 í Háteigskirkju heldur áfram eftir páskafrí næstkomandi þriðjudag þann 9. apríl kl. 13:30-15:00. Sjá dagskrá hér:
Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju vormisseri 2024
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Aðgangur er gjaldlaus (frjáls framlög).
Verið hjartanlega velkomin !
Dagskrá:
30. jan Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur (Dalamaður finnur nýjan tón í Havana)
6. feb Guðný Einarsdóttir, skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar (Ævintýraheimur orgelsins)
13. feb Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins (Innsýn í íslenska byggingararfleifð)
20. feb Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur (Tekist á við tímann – Í Varanasi á Indlandi)
27. feb Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi (Ljóð, sálmar og söngvar)
5. mars KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru ljúffengt súkkulaði).
12. mars Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur (Ævisaga árshringsins)
19. mars Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, Fyrri hluti erindis (Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.)
9. apríl Daði Guðbjörnsson, myndlistarmaður (Listin og lífið)
16. apríl Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, Seinni hluti erindis (Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.)
23. apríl (Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra (Hönnun og skipulag kirkjubygginga) )
SUMARFRÍ – Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2024 auglýst síðar
Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 3. apríl á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Verið öll hjartanlega velkomin á opnun á sýningu Diddu H. Leaman, miðvikudaginn 27. mars kl 16-18
Endurgerð
Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna eru verkin á sýningunni endurgerðir af nokkrum verkum unnum á undanförnum árum, ásamt frummyndunum. Þau eru abstrakt frekar en hlutbundin, eða, e.t.v. á mörkum þess hlutbundna og óhlutbundna. Myndirnar vísa í náttúruna og ýmis fyrirbæri hennar, svo sem liti og birtuskilyrði, áhrifa frá ferðalögum milli Reykjavíkur og Hólmavíkur gætir mörgum í myndanna. Þær túlka myndheim sem stenst ekki fyrirfram gefin náttúruskilyrði. Skuggar falla sinn í hvora áttina, svo óvissa ríkir um ljósgjafa. Atriði sem heilla myndhöfund túlka huglæg náttúrufyrirbæri, þetta er náttúra sem býr í hausnum á manni, eða náttúrufyrirbæri yfirfærð í hugann, þar sem náttúrulögmálum er breytt og endurteknar tilraunir gerðar með eigin hugmyndir og fagurfræðiviðmið.
Didda H. Leaman stundaði myndlistarnám á Íslandi, Finnlandi og Bretlandi, auk þess að bæta við sig námi í kennslufræði sjónlista og sjónlýsingum fyrir blinda og sjónskerta.
Eftir námslok í málaradeild við Slade School of Fine Art, University College London bjó hún í London í 20 ár, en hefur verið búsett í Reykjavík frá 2007. Árið 2017 hófst svo Hólmavíkurævintýri Diddu, en frá þeim tíma hefur hún dvalið hluta ársins á Hólmavík.
Didda hefur dvalið í vinnustofum listamanna í Kathmandu í Nepal og Novi Sad í Serbíu. Auk fjögurra mánaða námsdvalar í Barselóna. Didda er meðlimur SÍM og var meðlimur bow arts í Austur-London, þar sem hún var með vinnustofu. Hún var um tíma sýningarstjóri Hoffmannsgallerís, samstarfsverkefnis Myndlistaskólans í Reykjavík og ReykjavíkurAkademíunnar og meðlimur Nýlistasafnsins, auk þess að taka þátt í nokkrum verkum á vegum
Nýlókórsins. Didda var meðlimur í ARTgallerí Gátt og er einn af stofnfélögum Listfélagsins Steingrímur, sem hefur það markmið að auka aðgengi að listum og menningu á Ströndum.
Styrkir og starfslaun:
2016 Starfslaun listamanna 2015 Starfslaun listamanna (ferðastyrkur) 2015 Leónardó styrkur, til fjögurra mánaða námsdvalar í Barselóna 2014 Atvinnumál kvenna, styrkur til gerðar viðskiptaáætlunar fyrir sjónlýsingaverkefni 2013 Dvalarstyrkur Muggs til vinnustofudvalar í Nepal 2012 Nýsköpunarsjóður námsmanna, styrkur fyrir sýninguna Í Hljóði, samtímalistasýningar með sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta í Hoffmannsgalleríi
2016 Fuglasöngur og Mold, – 1-10/3- Lóa og Krummi. Höfundar, Þórunn Hjartardóttir og D.H.L. 6.02. tvö hljóðverk flutt af Nýlókórnum í safni Einars Jónssonar, stjórnandi Þráinn Hjálmarsson.
2013 Tilfærslur, Gryfjan, Listasafn ASÍ, einkasýning 2013 Paralell Journeys, KCAC Patan, Nepal 2013 Undir berum himni, samsýning í Þingholtunum, hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
(VINSAMLEGAST ATHUGIÐ að Gæðastund eldri borgara og Foreldramorgunn falla niður i dymbilviku)
PÁLMASUNNUDAGUR 24. mars Ferming kl. 10:30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sr. Davíð Þór Jónsson.
SKÍRDAGUR 28. mars Messa kl. 20:00. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir.
PÁSKADAGUR 31. mars Hátíðarguðsþjónusta kl. 8:00 árdegis. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar, sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Morgunverður í Safnaðarheimilinu að messu lokinni, í boði sóknarnefndar.
ANNAR Í PÁSKUM 1. apríl Ferming kl. 10:30. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sr. Davíð Þór Jónsson.
Prestar og sóknarnefnd Háteigskirkju óska ykkur öllum gleðilegrar páskahátíðar og bjóða ykkur velkomin í kirkjuna.
Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 19. mars kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikhúsmanneskja, flytja erindi sem ber yfirskriftina “Hallgrímur Pétursson og Guðríður Símonardóttir – Merkilegir einstaklingar og athyglisverðasta parið á Íslandi á 17. öld.“ Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð. (Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 12. mars en þá flutti Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur erindi sem bar yfirskriftina “Ævisaga árshringsins”).
Foreldrar ungbarna vinsamlegast athugið að Foreldramorgunn næsta miðvikudag 20. mars fer fram í HALLGRÍMSKIRKJU í stað Háteigskirkju:
Hallgrímskirkja, Háteigskirkja & Bústaðakirkja bjóða foreldra ungbarna HJARTANLEGA VELKOMNA á HAGNÝTA FORELDRAFRÆÐSLU á Foreldramorgni næstkomandi miðvikudag, 20. mars, kl. 10-12.
Staðsetning: HALLGRÍMSKIRKJA (salur í kjallara, inngangur á bak við kirkjuna)
Hrafnhildur Helgadóttir, menntaður hjúkrunarfræðingur, kennari, faggildur leiðbeinandi í skyndihjálp og með réttindi sem Gottman Bring baby home educator, flytur erindi sem ber yfirskriftina:
FORVARNIR OG FYRSTA HJÁLP UNGBARNA. Farið verður í gegnum slysaforvarnir og skyndihjálp ungbarna. Viðfangsefnin eru m.a.: Forvarnir endurlífgun ungbarna losun aðskotahlutar viðbrögð við hitakrampa viðbrögð við bruna
Efnið byggir á leiðbeiningum Evrópska endurlífgunarráðsins í ”Basic life support“ og Rauða krossins. Samvinna kirknanna þriggja um hagnýta foreldrafræðslu er styrkt af Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 13. mars á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !