Hallgrímskirkja, Háteigskirkja og Bústaðakirkja bjóða foreldrum ungra barna upp á hagnýta foreldrafræðslu (þeim að kostnaðarlausu) og kaffispjall í Bústaðakirkju, fimmtudaginn 2. maí kl. 10-12.
Erindið nefnist “FÆRIR FORELDRAR” og leiðbeinandi er Hrafnhildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari, faggildur leiðbeinandi í skyndihjálp og með réttindi sem Gottman Bring baby home educator.
NÁNAR UM ERINDIÐ:
Léttur og skemmtilegur fyrirlestur þar sem spjallað er um foreldrahlutverkið og parasambönd.
Viðfangsefni fyrirlestrarins eru m.a.:
• ég, þú, við ― undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið
• barnið heim hvað svo? Áskoranir í nýju hlutverki
• þroski barna og tengslamyndun
• hvernig leysum við ágreining?
• hvernig höldum við nándinni?
Samvinna kirkjanna þriggja um hagnýta foreldrafræðslu er styrkt af Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra
VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN FORELDRAR OG BÖRN