Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju – sýningaropnun laugardaginn 4. maí kl. 15 – 17:


Verið hjartanlega velkomin á opnun á sýningunni. Þrjú tímabil
Yfirlitssýning Maju Loebell

laugardaginn 4. maí kl. 15 – 17

Gengið inn frá Safnaðarheimilinu.

  1. Tímabil Haust 1997 – sumar 2001
    Nám við Myndlistarskóla Kópavogs hjá Erlu Sigurðardóttur, myndlistarmanni.
    Stórar vatnslitamynd
    Eftir eins og hálfs árs nám í myndlist sem aðalgrein við KH í Bremen í Þýskalandi lá leiðin til
    Íslands og þýskukennslan tók við. 1996 hófst aftur myndlistarnám í frístundum fyrst í Reykjavík
    síðan í Myndlistarskóla Kópavogs hjá Erlu Sigurðardóttur. Með hennar stuðningi urðu til stórar
    vatnslitamyndir þar sem tilviljun og stjórn tókust á.
  2. Tímabil Haust 2001 – sumar 2015
    Nám við Myndlistarskóla Kópavogs hjá ýmsum kennurum, m.a.
    Birgi Snæbirni Birgissyni, Svanborgu Matthíasdóttur og Söru Vilbergsdóttur.
    Olíumálun, ýmsar stefnur.
    Gróður í náttúru Íslands var höfuðþema.
    2010 – 2012 nám í listfræði við HÍ.
  3. Tímabil Haust 2015 til dagsins í dag
    Nám í Myndlistarskóla Kópavogs hjá Stephen Lárus Stephen, myndlistarmanni.
    Olíu- og vatnslitamálun.
    Uppstillingar, portrett og landslag.
    Þráin að geta sagt raunsæislega frá því sem ég sé hefur alltaf verið til staðar.
    „Tækni gömlu meistaranna“ eins og Stephen kennir hana höfðar til mín.
    Leiðbeinandi hugmyndir í þessari málun eru:
    „Mála það sem þú sérð, ekki það sem þú veist“ og
    „Ekki mála hluti heldur form og birtutóna“.
    Maja Loebell loebellmaja@gmail.com S. 697-3903

Opnunartímar:
Þriðjudaga-fimmtudaga kl. 10 – 16
Föstudaga kl. 10 – 15
Myndirnar eru í einkaeigu.