Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 7. febrúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 6. febrúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Guðný Einarsdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Ævintýraheimur orgelsins“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð. (Fyrirlesari á mynd sem fylgir er Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, sem flutti á góðri Gæðastund sl. þriðjudag erindi sem bar yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“)
Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Dagskrá Gæðastunda eldri borgara í Háteigskirkju á vormisseri 2024 er hafin. Gæðastundir eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga, auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Aðgangur er gjaldlaus (frjáls framlög). Sjá dagskrá vormisseris hér neðar. Verið hjartanlega velkomin !
Dagskrá:
30. jan Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur (Dalamaður finnur nýjan tón í Havana)
6. feb Guðný Einarsdóttir, skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar (Ævintýraheimur orgelsins)
13. feb Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins (Innsýn í íslenska byggingararfleifð)
20. feb Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur (Tekist á við tímann – Í Varanasi á Indlandi)
27. feb Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi (Ljóð, sálmar og söngvar)
5. mars Arna Guðný Valsdóttir, myndlistarkona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)
12. mars Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur (Ævisaga árshringsins)
19. mars KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru ljúffengt súkkulaði).
26. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra (Hönnun og skipulag kirkjubygginga)
SUMARFRÍ – Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2024 auglýst síðar
Minnum á fyrsta Foreldramorgunn á vormisseri 2024 í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 31. janúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Minnum á fyrstu Gæðastund eldri borgara á vormisseri 2024, á morgun þriðjudag 30. janúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fyrstu Gæðastund mun Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. (Myndirnar sem fylgja eru frá fyrri Gæðastundum) Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Erlu Rutar Káradóttur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!
Verið velkomin á fyrstu Gæðastund eldri borgara á vormisseri 2024, næstkomandi þriðjudag 30. janúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fyrstu Gæðastund mun Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. (Myndirnar sem fylgja eru frá fyrri Gæðastundum) Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.