Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 14. febrúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 13. febrúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Innsýn í íslenska byggingararfleifð“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð. (Fyrirlesari á mynd sem fylgir er Guðný Einarsdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar, sem flutti á góðri Gæðastund sl. þriðjudag 6. febrúar erindi sem bar yfirskriftina „Ævintýraheimur orgelsins“)
Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 7. febrúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 6. febrúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Guðný Einarsdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Ævintýraheimur orgelsins“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð. (Fyrirlesari á mynd sem fylgir er Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, sem flutti á góðri Gæðastund sl. þriðjudag erindi sem bar yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“)
Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Dagskrá Gæðastunda eldri borgara í Háteigskirkju á vormisseri 2024 er hafin. Gæðastundir eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga, auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Aðgangur er gjaldlaus (frjáls framlög). Sjá dagskrá vormisseris hér neðar. Verið hjartanlega velkomin !
Dagskrá:
30. jan Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur (Dalamaður finnur nýjan tón í Havana)
6. feb Guðný Einarsdóttir, skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar (Ævintýraheimur orgelsins)
13. feb Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins (Innsýn í íslenska byggingararfleifð)
20. feb Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur (Tekist á við tímann – Í Varanasi á Indlandi)
27. feb Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi (Ljóð, sálmar og söngvar)
5. mars Arna Guðný Valsdóttir, myndlistarkona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)
12. mars Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur (Ævisaga árshringsins)
19. mars KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru ljúffengt súkkulaði).
26. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra (Hönnun og skipulag kirkjubygginga)
SUMARFRÍ – Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2024 auglýst síðar
Minnum á fyrsta Foreldramorgunn á vormisseri 2024 í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 31. janúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te. Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
Minnum á fyrstu Gæðastund eldri borgara á vormisseri 2024, á morgun þriðjudag 30. janúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fyrstu Gæðastund mun Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“. Hlökkum til að sjá ykkur ! Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. (Myndirnar sem fylgja eru frá fyrri Gæðastundum) Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Erlu Rutar Káradóttur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!