Foreldramorgunn miðvikudaginn 20. mars fer fram í HALLGRÍMSKIRKJU kl. 10-12 í stað Háteigskirkju:

Foreldrar ungbarna vinsamlegast athugið að Foreldramorgunn næsta miðvikudag 20. mars fer fram í HALLGRÍMSKIRKJU í stað Háteigskirkju:

Hallgrímskirkja, Háteigskirkja & Bústaðakirkja bjóða foreldra ungbarna
HJARTANLEGA VELKOMNA á HAGNÝTA FORELDRAFRÆÐSLU á Foreldramorgni næstkomandi miðvikudag, 20. mars, kl. 10-12.

Staðsetning: HALLGRÍMSKIRKJA (salur í kjallara, inngangur á bak við kirkjuna)

Hrafnhildur Helgadóttir, menntaður hjúkrunarfræðingur, kennari, faggildur leiðbeinandi í skyndihjálp og með réttindi sem Gottman Bring baby home educator, flytur erindi sem ber yfirskriftina:

FORVARNIR OG FYRSTA HJÁLP UNGBARNA.
Farið verður í gegnum slysaforvarnir og skyndihjálp ungbarna. Viðfangsefnin eru m.a.:
Forvarnir
endurlífgun ungbarna
losun aðskotahlutar
viðbrögð við hitakrampa
viðbrögð við bruna

Efnið byggir á leiðbeiningum Evrópska endurlífgunarráðsins í ”Basic life support“ og Rauða krossins.
Samvinna kirknanna þriggja um hagnýta foreldrafræðslu er styrkt af Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra og er þátttakendum að kostnaðarlausu.