
Perlukór Háteigskirkju býður nýja félaga hjartanlega velkomna. Æfingar hefjast í næstu viku, hlökkum til að sjá þig!
Nánari upplýsingar hjá gudnyei@gmail.com.

Perlukór Háteigskirkju býður nýja félaga hjartanlega velkomna. Æfingar hefjast í næstu viku, hlökkum til að sjá þig!
Nánari upplýsingar hjá gudnyei@gmail.com.
Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Verið velkomin á opnun sýningarinnar, Vonarland, á föstudaginn kemur í Gallerí Göngum kl 16-18. Þar sýnir Linda Guðlaugsdóttir vatnslitamyndir sínar.Linda Guðlaugsdóttir er Grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur haft vatnslitinn til hliðar í mörg ár og tekið ýmsa kúrsa. Fyrst hjá Pétri Behrens í Myndlistarskóla Reykjavíkur.Linda sýndi tússteikningar í Anarkíu fyrir nokkrum árum. Litlar skissur unnar úti – aðallega fjöll.“Ég geng mjög mikið úti í náttúrunni. Ég hef alltaf verið teiknari, notið þess að eiga stund í næði og teikna það sem fyrir augu ber eða skissa með vatnslitum. Stundum er farið út bara til að mála en oftast er lítið sett meðferðis í bakpokanum.Stundum er veðrið ekki uppá sitt besta en það getur gefið heilmikið samt.Ég hef kynnst því að vatnið í penslinum frýs og vatnsliturinn verður krapi á pappírnum, það er þá bara þannig.Mér finnst ég vera að rannsaka, njóta og fljóta með.Náttúran gefur mér stöðugt orku þegar ég er á göngu, það er fegurðin í hinu smáa og virðingin fyrir plöntum sem þurfa að hafa svo mikið fyrir því að lifa af, berjast fyrir sínu í óblíðum aðstæðum. Litadýrð, birtan, andstæður, form, hrikaleiki. Mér líður misjafnlega, ef aðstæður eru krefjandi get ég orðið afskaplega smá og lítil í mér.“


Fyrsta GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2024 verður þriðjudaginn 17. sept. kl. 13:30 til 15. Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona og málari og Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina “Rímnaskáldið Sigurður Breiðfjörð”. Að venju verður boðið upp á ljúffengar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur aftur! (Heildardagskrá haustsins verður auglýst síðar).

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl. 11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Vænst er þátttöku fermingarbarna vorsins 2025 og forráðamanna þeirra. Skráning í fermingarfræðslu vetrarins. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl. 11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Lenka Mateova. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
