Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju – SÝNINGAROPNUN Í DAG – fimmtudag 19. mars kl. 16:00 á verkum listakonunnar Maríu Lofts – Allir hjartanlega velkomnir

FJÖLBEYTILEIKI – einkasýning Maríu Lofts opnar í dag kl. 16:00 í Gallerí Göngum í Háteigskirkju.

Listakonan byrjaði snemma að teikna og mála og sköpun hefur alla tíð verið órjúfanlegur hluti af hennar lífi. Í málverkunum vinna litir, form og tilfinningar saman og skapa landslag sem er bæði raunverulegt og ímyndað.

Verkin verða til í ferli þar sem innsæi ræður ferðinni. Hún leyfir litunum að leiða sig áfram og treystir því sem upp kemur á meðan verkin mótast. Í sumum má greina manneskjur eða fígúrur, í öðrum birtast fyrst og fremst stemning, hreyfing og samvera.

Myndirnar endurspegla augnablik, minningar og tilfinningar – það sem var, og það sem er, og það sem lifir áfram í huganum. Hvert verk fær sitt eigið nafn þegar það er fullmótað, eins og myndin sjálf segi frá því hver hún er.

María hefur viðað að sér þekkingu í málaralist í fjölda ára, hér heima og erlendis og er enn að.

Allir hjartanlega velkomnir.

GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 17. mars kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 17. mars kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sigurður Flosason, Söngmálastjóri og tónlistarstjóri Þjóðkirkjunnar, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Nýr Söngmálastjóri kynnir sig”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 17. mars. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 17. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sigurður Flosason, Söngmálastjóri og tónlistarstjóri Þjóðkirkjunnar, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Nýr Söngmálastjóri kynnir sig”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 15. mars – fjórði sunnudagur í föstu


Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 10. mars. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 10. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Helga Vollertsen, sérfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Þjóðminjasafnið og valdir gripir úr safneigninni”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 10. mars. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 10. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Helga Vollertsen, sérfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Þjóðminjasafnið og valdir gripir úr safneigninni”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 8. mars – þriðji sunnudagur í föstu

Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju, syngja. Organisti og kórstjóri Kordíu er Erla Rut Káradóttir. Kórstjóri Perlukórsins er Guðný Alma Haraldsdóttir. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 3. mars. kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 3. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Guðný Einarsdóttir, organisti Grafarvogskirkju og orgelkennari, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Geta börn lært á orgel”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 3. mars. kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 3. mars. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Guðný Einarsdóttir, organisti Grafarvogskirkju og orgelkennari, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Geta börn lært á orgel”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 1. mars – Æskulýðsdagurinn

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Laufey Sigrún Haraldsdóttir leikur undir á píanó. Kári Hilmarsson leikur á klarinett. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

(Ljósmyndina tók fermingarbarn í snjókomu á dögunum)