Uppstigningardagur 26.maí 2022.

Messa kl. 14 á degi aldraðra. Sr. Eiríkur Jóhannsson predikar og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja. Systkinin Karítas og Guðmundur Jónsbörn leika á hljóðfæri sín. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni.

Sunnudagur 22. maí 2022- Fimmti sunnudagur eftir páska.

Sunnudagur 22. maí 2022- Fimmti sunnudagur eftir páska.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.  Fiðlunemendur Helgu Steinunnar Torfadóttur leika á hljóðfæri sín.Organisti er Guðný Einarsdóttir og prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.  Grill í garðinum í boði sóknarnefndar að guðsþjónustu lokinni.  Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 8. maí – Þriðji sunnudagur eftir páska.

Messa kl. 11.  Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja undir stjórn organistans Arngerðar Maríu Árnadóttur.  Verið innilega velkomin.

24.apríl 2022

Messa 1. sunnudag páskatímans, kl. 11.
Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Arngerður María Árnadóttir leikur á orgel. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða söng. Allir velkomnir.

Dagskrá helgihalds í Háteigskirkju í dymbilviku og á páskum 2022.

Dagskrá helgihalds í Háteigskirkju í dymbilviku og á páskum 202Skírdagur – 14. apríl.

Kvöldmessa kl. 20:00.  Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur, organisti er Guðný Einarsdóttir.

Föstudagurinn langi – 15. apríl.

Guðsþjónusta kl. 14:00.  Píslarsagan lesin.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur, organista. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.

Páskadagur – 17. apríl.

Hátíðarguðsþjónusta kl. 8:00 árdegis.  Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari.  Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.    Kordía, kór Háteigskirkju syngur, organisti er Guðný Einarsdóttir.  Morgunverður í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni í boði sóknarnefndar. 

Annar í páskum – 18. apríl.

Ferming kl. 10:30.  Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur, organisti er Arngerður María Árnadóttir.  Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.

Verið öll hjartanlega velkomin til helgihaldsins í kirkjunni um hátíðisdagana.  Ef upp koma neyðartilvik og ná þarf í prest er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur og prófastur á vakt í s. 8609997.  Guð gefi ykkur öllum gleðilega páska.

Pálmasunnudagur 10. apríl 2022

Ferming kl. 10:30.  Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur, organista.  Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.

Sunnudagur 3. apríl.

Ferming kl. 10:30.  Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet.  Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur, organista.  Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.

Verið hjartanlega velkomin á Gæðastund

þriðjudaginn 5.apríl. Gestur okkar verður Hófí Guðmundsdóttir, ljósmóðir, kemur og deilir reynslu sinni af störfum á átaka- og hamfarasvæðum. Arngerður María Árnadóttir leikur undir fjöldasöng og sr. Eiríkujr Jóhannsson hefur stundina.

Gæðastund 29.mars fellur niður.

Þar sem framkvæmdir eru enn í fullum gangi í salnum, neyðumst við til að fella niður næstu Gæðastund líka. Hlökkum því meira til að taka á móti ykkur í fallega salnum okkar þann 5.apríl.