Sunnudagur 17. desember – þriðji sunnudagur í aðventu

Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af vígsludegi kirkjunnar. Sérstakur gestur, Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra, flytur hugvekju. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og sr. Davíð Þór Jónsson þjóna. Erla Rut Káradóttir organisti leikur. Kordía, kór Háteigskirkju, og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju, syngja. Kaffi og samvera í safnaðarheimilinu á eftir.

Sunnudagur 10. desember – annar sunnudagur í aðventu

Messa kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir.

Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju um sýningaropnun næstkomandi laugardag 9. desember kl. 15-17:

Sigurður Þórir Sigurðsson listmálari verður með næstu sýningu í gallerí Göngum, við Háteigskirkju. Yfirskrift sýningarinnar er Hugarflug. Hún opnar laugardaginn 9. desember kl 15-17. Allir eru hjartanlega velkomnir á opnun. Gengið inn frá Safnaðarheimilinu.
Sigurður er fæddur árið 1948 og stundaði nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn hjá prófessor Dan Sterup – Hansen á árunum 1974-1978. Sigurður Þórir hefur sýnt ótal mörgum sinnum bæði hér heima og erlendis.
Myndirnar eru strangflatarmyndir (geometriskt abstrakt) . Verkin eru flest máluð síðasta árið, ásamt nokkrum eldri myndum.  
Sýningunni lýkur 28.janúar 2024

Sunnudagur 3. desember – fyrsti sunnudagur í aðventu

Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Foreldramorgunn á morgun miðvikudag kl. 10-11:30

Minnum á síðasta Foreldramorgunn fyrir jólafrí, í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 29. nóvember á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og létt snarl/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin ! Foreldramorgnar hefjast aftur á nýju ári skv. auglýsingu.

Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 28. nóvember kl. 13:30-15

Minnum á síðustu Gæðastund eldri borgara á þessu haustmisseri, á morgun þriðjudag 28. nóvember kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund munu Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, og verður stundin með svolítið jólalegu ívafi, enda sú síðasta fyrir jólafrí.
Hlökkum til að sjá ykkur ! (DAGSKRÁ GÆÐASTUNDA Á VORÖNN 2024 VERÐUR TILKYNNT Á NÝJU ÁRI.)
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund þann 21. nóv. sl þegar Edda Björgvinsdóttir, leikkona, flutti erindi sem bar yfirskriftina “Húmor og hamingja – dauðans alvara”.)
Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

  1. sept Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Háteigskirkju. (Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði)
  2. okt KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru konfektkassar með ljúffengum súkkulaðimolum)
  3. okt Ármann Reynisson, rithöfundur. (Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu)
  4. okt Gissur Páll Gissurarson, tenór. (Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs)
  5. okt Arna Guðný Valsdóttir, myndlistakona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri. (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi) (ATH! GÆÐASTUND 24. OKT. FÉLL NIÐUR ÞAR SEM HANA BAR UPP Á KVENNAFRÍDAGINN. ERINDI ÖRNU GUÐNÝJAR FLYST YFIR Á VORMISSERI).
  6. okt Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun. (Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli)
  7. nóv Lilja Árnadóttir, fyrrv. fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands. (Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin)
  8. nóv Inga Elín, myndlistarmaður og hönnuður. (Lífsverkið)
  9. nóv Edda Björgvins, leikkona. (Húmor og hamingja – dauðans alvara)
  10. nóv Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor. (Spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, m.a. jólasögu)
    JÓLAHLÉ – Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 auglýst síðar

Sunnudagur 26. nóvember – síðasti sunnudagur í kirkjuárinu

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Vigdísar Þóru Másdóttur. Organisti er Guðný Einarsdóttir og prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Léttar veitingar í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni.

Foreldramorgunn á morgun miðvikudag 22. nóvember kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 22. nóvember á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.

Foreldrar með ungabörn verið velkomin !