Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 3. nóvember, kl. 13:30 til 15 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Sævar Helgi Bragason (Sjörnu-Sævar), jarðfræðingur og umsjónarmaður Iceland at Night norðurljósa- og stjörnuskoðunarvefsins, flytur erindi sem ber yfirskriftina “Undur næturhiminsins yfir Íslandi”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
