Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 27. október, kl. 13:30 til 15 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Hannað úr íslenskri ull og garni”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
