Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 19. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur flytur erindi undir yfirskriftinni “Einar Jónsson myndhöggvari, ævi og störf”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 til 3. des., sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).