_____________________________________
Nú stendur yfir sýning á verkum Örnu Siggu Sæmundsdóttur í Gallerí Göngum. Arna Sigga er blómaskreytir og myndlistarkona. Hún hefur málað myndir í um 9 ár og áður haldið sýningar á verkum sínum. Myndlist Örnu sækir innblástur í gróður, blóm og náttúruna enda hefur hún í störfum sínum unnið með blóm og jurtir um áratugaskeið. Arna Sigga ólst upp við Ægisíðuna, elst fjögurra systkina en býr nú við rætur Úlfarsfells og útsýnið frá vinnustofunni er fjallahringurinn við Reykjavík. Upplýsingar um opnunartíma gallerísins má sjá hér: https://hateigskirkja.is/galleri-gong/ Verið velkomin!
