Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024

Dagskrá Gæðastunda eldri borgara í Háteigskirkju á vormisseri 2024 er hafin. Gæðastundir eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga, auk þess sem boðið er upp á kaffi og góðar veitingar. Aðgangur er gjaldlaus (frjáls framlög). Sjá dagskrá vormisseris hér neðar. Verið hjartanlega velkomin !

Dagskrá:

30. jan Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur (Dalamaður finnur nýjan tón í Havana)

6. feb Guðný Einarsdóttir, skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar (Ævintýraheimur orgelsins)

13. feb Magnús Skúlason, fyrrv. formaður húsafriðunarnefndar ríkisins (Innsýn í íslenska byggingararfleifð)

20. feb Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur (Tekist á við tímann – Í Varanasi á Indlandi)

27. feb Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi (Ljóð, sálmar og söngvar)

5. mars Arna Guðný Valsdóttir, myndlistarkona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi)

12. mars Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur (Ævisaga árshringsins)

19. mars KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru ljúffengt súkkulaði).

26. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra (Hönnun og skipulag kirkjubygginga)

SUMARFRÍ – Dagskrá Gæðastunda á haustmisseri 2024 auglýst síðar