Áramót í Háteigskirkju 2024-2025

Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 18:00.
Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur, organista. Peter Tompkins leikur á óbó.

Nýársdagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00.
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur, organista. Ellert Blær Guðjónsson syngur einsöng.

Verið velkomin!

Jól í Háteigskirkju 2024

Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 18
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur, organista. Jólatónlist leikin á strengjahljóðfæri frá kl. 17:30.

Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00
Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur, organista. Una Dóra Þorbjörnsdóttir syngur einsöng.

Annar í jólum: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar ásamt meðlimum úr undirbúningsdeild DKR undir stjórn Önnu Hugadóttur. Meðleikari Laufey Sigrún Haraldsdóttir. Organisti er Erla Rut Káradóttir.

Sunnudagur 29.desember: Helgihald fellur niður.

Tilkynning um lokun Háteigskirkju í byrjun árs 2025 vegna viðhalds- og málningarvinnu:

Unnið verður að viðhaldi og málun Háteigskirkju í janúar 2025 í tilefni af 60 ára afmæli kirkjunnar sama ár. Af þessum sökum verður Háteigskirkja lokuð frá og með 7. janúar út mars 2025 á meðan unnið er að málun að innan. Safnaðarheimili kirkjunnar verður opið eins og venjulega og helgihald flyst þangað, í veislusal á 2. hæð. Safnaðarheimilið er staðsett á bak við kirkjuna (gengið er inn um glerdyr norðanmegin, frá bílastæði á ská gegnt gamla Stýrimannaskólanum). Gæðastundir eldri borgara,  Fjölskyldusamverur og Bænastundir sem haldnar hafa verið í safnaðarheimilinu haldast óbreyttar á meðan kirkjan er lokuð. Unnið verður að málun kirkjunnar að utan á vordögum, sem mun ekki hafa áhrif á opnun hennar. 
Fyrsta messan 2025 í safnaðarheimili Háteigskirkju verður þann 12. janúar 2025 kl. 11.

Verið velkomin!

22. desember – Fjórði sunnudagur í aðventu

Messa kl. 11. Sr. Þorvaldur Víðisson prófastur prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á fjórða kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Barn verður borið til skírnar í guðsþjónustunni. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

(Meðfylgjandi mynd er frá hátíðlegu Aðventukvöldi þann 15. desember sl. og sýnir Biskup Íslands sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur, sem flutti hugvekju við tilefnið og sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur ganga milli bekkja og tendra kerti, sem allir kirkjugestir báru, áður kórar og kirkjugestir sungu Fögur er foldin við kertaljós undir lok Aðventukvöldsins.)

May be an image of 11 people, lighting and candle holder

See insights and ads

Boost post

15. desember – Þriðji sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11 og Aðventukvöld kl. 20:

15. desember – Þriðji sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11 og Aðventukvöld kl. 20:

Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á þriðja kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Aðventukvöld kl. 20. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir flytur hugvekju. Prestur er sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngja. Stjórnandi Perlukórsins er Guðný Einarsdóttir. Jón Guðmundsson spilar á flautu. Almennur söngur í bland við kórsöng og talað orð við kertaljós. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 8. desember

Annar sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á öðru kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Barn verður borið til skírnar í messunni. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Fjölskyldusamvera á morgun, miðvikudag 4. desember kl. 17-18:30

Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU í Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 4. DESEMBER kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin! (Um er að ræða síðustu fjölskyldusamveruna á þessu ári. Fyrsta fjölskyldusamvera á árinu 2025 verður miðvikudaginn 15. janúar og verður hún auglýst nánar síðar).

Gæðastund eldri borgara á morgun, þriðjudag 3. desember kl. 13:30-15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 3. desember kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor spila létt lög og jólalög á saxófón og gítar og segja jólasögu. Um er að ræða síðustu Gæðastund á þessu misseri. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin!
Hlökkum til að sjá ykkur! (Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2025 verður auglýst síðar).