Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir.
Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir.
Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Minnum á Foreldramorgunn í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 8. nóvember á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Minnum á Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 7. nóvember kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund flytur Lilja Árnadóttir, fyrrv. fagstjóri munasafns Þjóðminjasafns Íslands, erindi sem ber yfirskriftina “Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin”.
Hlökkum til að sjá ykkur ! (SJÁ HEILDARDAGSKRÁ GÆÐASTUNDA Á HAUSTMISSERI 2023 NEÐAR)
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund þann 31. okt. sl þegar Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun flutti erindi sem bar yfirskriftina “Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli”).
Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.





Minnum á þennan skemmtilega og þarfa viðburð, Jól í skókassa, i safnaðarheimili Háteigskirkju kl. 12:30-14:30 í dag. Allir hjartanlega velkomnir að taka þátt. Sjá nánar í lýsingu viðburðarins á fb síðu Háteigskirkju. ????

Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kordía, kór Háteigskirkju, syngja og organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Minnum á að viðburðurinn “Jól í skókassa” fer fram að messu lokinni eða kl. 12:30-14:30 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili kirkjunnar. Sjá nánar hér: https://facebook.com/events/s/jol-i-skokassa/1001219184322752/

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 1. nóvember á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Minnum á Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 31. október kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund flytur Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun erindi sem ber yfirskriftina “Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli”. Hlökkum til að sjá ykkur ! (SJÁ HEILDARDAGSKRÁ GÆÐASTUNDA Á HAUSTMISSERI 2023 NEÐAR)
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar. (Myndirnar sem fylgja eru frá góðri Gæðastund þann 17. okt. sl þegar Gissur Páll Gissurarson, tenór, flutti erindi sem bar titilinn „Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs“ og tók einnig lagið við mikinn fögnuð viðstaddra).
Dagskrá Gæðastunda í Háteigskirkju haustmisseri 2023 Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15. Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
26. sept Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Háteigskirkju. (Allt uns festing brestur, um efni og ljóðform dróttkvæðs háttar, eins hins dýrasta í íslenskri bragfræði)
3. okt KONFEKTBINGÓ (Við spilum bingó saman undir léttum tónum – vinningarnir eru konfektkassar með ljúffengum súkkulaðimolum)
10. okt Ármann Reynisson, rithöfundur. (Vinjettur… lifandi örsögur með fjölbreyttu efni úr lífinu og umhverfinu) 17. okt Gissur Páll Gissurarson, tenór. (Gildi matar og tónlistar fyrir fagurfræði daglegs lífs)
24. okt Arna Guðný Valsdóttir, myndlistakona, listkennari við VMA og stjórnarmaður Gilfélagsins á Akureyri. (Listagilið, orkuveita í norðlensku lista- og menningarlífi) (ATH! GÆÐASTUND 24. OKT. FÉLL NIÐUR ÞAR SEM HANA BAR UPP Á KVENNAFRÍDAGINN. ERINDI ÖRNU GUÐNÝJAR FLYST YFIR Á VORMISSERI).
31. okt Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor hjá Árnastofnun. (Elstu heimildir um íslensku. Fjallað um þróun íslensku og birtingu í elstu handritum, rit á íslensku sem varðveist hafa frá miðöldum og staðsetningu elstu handrita, orðaforða elstu texta og hvernig hann er frábrugðinn nútímamáli)
7. nóv Lilja Árnadóttir, fyrrum sviðsstjóri Þjóðminjasafni Íslands. (Refilsaumuðu íslensku altarisklæðin)
14. nóv Inga Elín, myndlistarkona og hönnuður. (Lífsverkið)
21. nóv Edda Björgvins, leikkona. (Húmor og hamingja – dauðans alvara)
28. nóv Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur Rvík-eystra og Sigurður Grétarsson prófessor. (Spila létt lög á saxófón og gítar og segja skemmtisögur, m.a. jólasögu)
JÓLAHLÉ – Dagskrá Gæðastunda á vormisseri 2024 auglýst síðar




Verið öll hjartanlega velkomin á opnun sýngar RUTAR BJARNADÓTTUR í GALLERÍ GÖNGUM laugardag 28.10 kl 14-16
ÞYBBA Á ÞURRU LANDI
Verk Rutar eru alltaf á einn eða annan hátt unnin út frá eigin upplifunum.
Í þetta sinn er myndefnið hið kvenlega form sem er breytingum háð
gegnum lífið. Aukakílóin læðast að eitt af öðru og mynda annað form
sem kallar á nýsköpun, meðal annars lagfæringar á fatnaði viðkomandi.
Blúndumunstrið, sem er gegnumgangandi í verkum Rutar, er sprottið úr
áralangri reynslu hennar af að vinna með textíl.
Biða, þýðir keald eða dufl og getur líka þýtt “jafnbola kvenmaður”.
Þybba, þýðir fríholt eða hnellin.
Tunnan, er gömul og ryðguð.
Byttan, er umvafin vínrauðu ölduróti.
Rut Bjarnadóttir (1952) starfar nú og býr á Hólmavík, Ísland. Rut
vinnur með áferð og yfirborð með mismunandi tækni. Rut
útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Reykjavík
(IS) í textíllist og hönnun árið 1987.
Valdar einkasýningar: Íslenska menningarmiðstöðin (Jónshús),
Kaupmannahöfn (DK), Sjöbo Konsthall, Sjöbo (SE). Gallerí
Orås (SE). Fyrri samsýningar í úrvali: Malmö Open Studios,
ADDO, Malmö (SE). Seðlabanki Íslands (IS),
Lista- og arkitektúrskólinn, Helsinki (FI).


Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur og organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Heitt á könnunni í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Minnum á Foreldramorgun í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag 25. október á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurýml á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !
