Guðsþjónusta 20. mars.

3. sunnudag í föstu, kl. 11.Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Guðný Einarsdóttir leikur á orgelið og félagar í Hljómeyki leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir.

Gæðastund 8.mars 2022

Verið velkomin á Gæðastund dagsins kl. 13.30-15. Gestur okkar verður Magnús Gottfreðsson, læknir og prófessor í smitsjúkdómafræðum, og er yfirskrift erindis hans Af farsóttum í fortíð, nútíð og framtíð. Sr. Eiríkur Jóhannsson heldur utan um stundina og Arngerður María Árnadóttir leiðir söng.

Gæðastund á morgun.

Verið velkomin á Gæðastund kl. 13.30-15, þriðjudaginn 1.mars 2022. Allir fastir liðir veða á sínum stað og gestir dagsins verða hjónin Óttar Guðmundsson, geðlæknir, og Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkona. Yfirskrift þeirra er Ástir og örlög í Sturlungu.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. 

27. febrúar – Sunnudagur í föstuinngang.

Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur við undirleik Bjarkar Sigurðardóttur.  Organisti er Arngerður María Árnadóttir.  Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.  Verið öll hjartanlega velkomin í kirkjuna.

Velkomin á Gæðastund

þriðjudaginn 22. febrúar kl. 13.30-15. Sr. Eiríkur Jóhannsson mun hefja stundina, og Arngerður María Árnadóttir stjórnar fjöldasöng. Kaffi og veitingar. Gestur dagsins er Sigrún Helgadóttir sem segir frá verðlaunabók sinni „Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni.“

22.feb. 22                   Sigrún Helgadóttir. Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni.                     

1.mars 22                    Jóhanna Þórhallsdóttir og Óttar Guðmundsson.    

8.mars 22                    Magnús Gottfreðsson. Af farsóttum í fortíð, nútíð og framtíð.                   

15.mars 22                  Pétur Ármannsson. Háteigskirkja –  Rauðarárholtið.         

22.mars 22                  Verður tilkynnt síðar.

5.apríl 22                    Verður tilkynnt síðar.

12. apríl 22                 Karl Sigurbjörnsson. Desmond Tutu.                        

26.apríl 22                  Verður tilkynnt síðar.

3.maí     22                  Verður tilkynnt síðar.

Guðsþjónusta 13. febrúar,

1. sunnudag í níuviknaföstu, kl. 11.
Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Arngerður María Árnadóttir leikur á orgel. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 6. febrúar,

síðasta sunnudag eftir þrettánda, kl. 11.
Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari. Guðný Einarsdóttir leikur á orgel. Félagar í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagur 30. janúar – Fjórði sunnudagur eftir þrettánda.

Helgihald fellur niður í dag en upptöku guðsþjónustu frá Háteigskirkju verður útvarpað á Rás1 kl. 11.  Þar prédikar sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og þjónar fyrir altari.  Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju syngja undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur.