Sunnudagur 27. september – 17. sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur. Ungir orgelnemar frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar leika á orgelið undir stjórn kennara síns, Guðnýjar Einarsdóttur, organista sem jafnframt leikur undir almennan söng. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í Safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Mynd: RH