Verið hjartanlega velkomin á fyrstu GÆÐASTUND eldri borgara á haustmisseri 2026, á morgun, þriðjudag 22. september, kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Erla Dóris Halldórsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Óhreinu börnin hennar Evu”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
