Tilkynning frá Gallerí Göngum í Háteigskirkju – SÝNINGAROPNUN Í DAG – fimmtudag 19. mars kl. 16:00 á verkum listakonunnar Maríu Lofts – Allir hjartanlega velkomnir

FJÖLBEYTILEIKI – einkasýning Maríu Lofts opnar í dag kl. 16:00 í Gallerí Göngum í Háteigskirkju.

Listakonan byrjaði snemma að teikna og mála og sköpun hefur alla tíð verið órjúfanlegur hluti af hennar lífi. Í málverkunum vinna litir, form og tilfinningar saman og skapa landslag sem er bæði raunverulegt og ímyndað.

Verkin verða til í ferli þar sem innsæi ræður ferðinni. Hún leyfir litunum að leiða sig áfram og treystir því sem upp kemur á meðan verkin mótast. Í sumum má greina manneskjur eða fígúrur, í öðrum birtast fyrst og fremst stemning, hreyfing og samvera.

Myndirnar endurspegla augnablik, minningar og tilfinningar – það sem var, og það sem er, og það sem lifir áfram í huganum. Hvert verk fær sitt eigið nafn þegar það er fullmótað, eins og myndin sjálf segi frá því hver hún er.

María hefur viðað að sér þekkingu í málaralist í fjölda ára, hér heima og erlendis og er enn að.

Allir hjartanlega velkomnir.