Messa kl. 11 í sal safnaðarheimilis Háteigskirkju á 2. hæð (ath. kirkjan sjálf er lokuð vegna lagfæringa í jan.-mars). Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
