Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 30. jan. kl. 13:30-15

Minnum á fyrstu Gæðastund eldri borgara á vormisseri 2024, á morgun þriðjudag 30. janúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fyrstu Gæðastund mun Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá fyrri Gæðastundum)
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

Sunnudagur 28. janúar

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans, Erlu Rutar Káradóttur. Prestur er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!

Fyrsta Gæðastund á vormisseri þann 30. jan næstkomandi

Verið velkomin á fyrstu Gæðastund eldri borgara á vormisseri 2024, næstkomandi þriðjudag 30. janúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari fyrstu Gæðastund mun Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður og rithöfundur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Dalamaður finnur nýjan tón í Havana“.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
(Myndirnar sem fylgja eru frá fyrri Gæðastundum)
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.

Sunnudagur 21. janúar 2024

Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir.
Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 14. janúar 2024

Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 7. janúar 2024

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir.

Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Háteigskirkja óskar öllum gleðilegs árs, friðar og farsældar.

Helgihald í Háteigskirkju um áramót 2023-2024

Gamlársdagur 31. desember.

Aftansöngur kl. 18:00.
Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Peter Tompkins leikur á óbó. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Verið öll hjartanlega velkomin.

Nýársdagur 1. janúar 2024.

Hátíðarmessa kl. 14:00
Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Verið öll hjartanlega velkomin.

Sunnudagur 17. desember – þriðji sunnudagur í aðventu

Hátíðarmessa kl. 11 í tilefni af vígsludegi kirkjunnar. Sérstakur gestur, Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra, flytur hugvekju. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og sr. Davíð Þór Jónsson þjóna. Erla Rut Káradóttir organisti leikur. Kordía, kór Háteigskirkju, og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju, syngja. Kaffi og samvera í safnaðarheimilinu á eftir.