Sunnudagur 16. mars – annar sunnudagur í föstu

Messa kl. 11 í Safnaðarheimili Háteigskirkju (ath. kirkjan sjálf er lokuð jan.-mars vegna viðgerða). Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni, djús og kruðerí að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Fermingardagar í Háteigskirkju á næsta ári 2026

Til upplýsingar: Fermingardagar í Háteigskirkju á næsta ári 2026. Fermingardagar í Háteigskirkju árið 2026 verða sem hér segir: Pálmasunnudagur 29. mars kl. 10:30 Annar í páskum 6. apríl kl. 10:30 Sunnud. e. páska 12. apríl kl. 10:30 Bréf til allra barna í Háteigssókn fæddra 2012 og forráðamanna þeirra verður sent út í apríl 2025. Þar munu koma fram allar upplýsingar um fyrirkomulag fermingarfræðslunnar í Háteigskirkju veturinn 2025-2026.


Fjölskyldusamvera á morgun, miðvikudag 12. mars kl. 17-18:30

Minnum á FJÖLSKYLDUSAMVERU í safnaðarheimili Háteigskirkju á morgun, MIÐVIKUDAG 12. MARS kl. 17-18:30. Umsjón hefur sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Sjá nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu. Verið öll hjartanlega velkomin!

Gæðastund eldri borgara næstkomandi þriðjudag 11. mars kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 11. mars kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur Grindavíkurkirkju flytur erindi undir yfirskriftinni “Grindavíkurkirkja, viðbrögð við og starfið eftir hamfarirnar“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 9. mars

Messa kl. 11 í sal safnaðarheimilis Háteigskirkju á 2. hæð (ath. kirkjan sjálf er lokuð vegna lagfæringa í jan.-mars). Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Kvartettinn Barbari syngur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Gæðastund eldri borgara á morgun þriðjudag 4. mars kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun þriðjudag 4. mars kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrv. ráðherra, flytur erindi undir yfirskriftinni „Menntun og menning: Fortíð og framtíð sameinast“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Gæðastund eldri borgara næstkomandi þriðjudag 4. mars kl. 13:30 til 15

Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 4. mars kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrv. ráðherra, flytur erindi undir yfirskriftinni „Menntun og menning: Fortíð og framtíð sameinast“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!

Sunnudagur 2. mars – Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í sal safnaðarheimilis Háteigskirkju á 2. hæð (ath. kirkjan sjálf er lokuð vegna lagfæringa í jan.-mars). Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin