Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 13. mars kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 13. mars á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Gæðastund á morgun þriðjudag 12. mars kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 12. mars kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona, rithöfundur og grasnytjungur, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Ævisaga árshringsins“.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
(Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 5. mars en þá spiluðum við Konfektbingó saman undir léttum tónum og voru vinningarnir konfektöskjur með ljúffengu súkkulaði.)

Sunnudagur 10. mars – Fjórði sunnudagur í föstu

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Valskórinn syngur undir stjórn Báru Grímsdóttur. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.

Foreldramorgunn miðvikudag 6. mars kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 6. mars á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Gæðastund á morgun, þriðjudag 5. mars kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 5. mars kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund spilum við saman ⚜️KONFEKTBINGÓ⚜️ undir léttum tónum, en vinningarnir eru ljúffengt súkkulaði. (Breyting varð á áður tilkynntri dagskrá þar sem fyrirlesari forfallaðist).
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
(Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 27. febrúar en þá flutti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi, erindi sem bar yfirskriftina „Ljóð, sálmar og söngvar“.)

Sunnudagur 3. mars – Þriðji sunnudagur í föstu

.Messa kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Æskulýðsguðsþjónusta á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Kór Ísaksskóla syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni.

Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 28. febrúar kl 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 28. febrúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !

Gæðastund á morgun, þriðjudag 27. febrúar kl. 13:30-15

Minnum á Gæðastund eldri borgara, á morgun þriðjudag 27. febrúar kl. 13:30-15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á þessari Gæðastund mun Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi, flytja erindi sem ber yfirskriftina „Ljóð, sálmar og söngvar“.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Gæðastundirnar eru stundir þar sem eldri borgarar koma saman, á þriðjudögum kl. 13:30-15:00, í safnaðarheimili Háteigskirkju og boðið er upp á áhugaverð, fróðleg og skemmtileg erindi af ýmsum toga auk þess sem ávallt er boðið upp á kaffi og góðar veitingar.
Tími: Þriðjudaga kl. 13:30-15.
Staðsetning: Safnaðarheimili Háteigskirkju (norðurinngangur) í veislusal á 2. hæð.
(Meðfylgjandi myndir eru frá góðri Gæðastund sl. þriðjudag 20. febrúar en þá flutti Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og rithöfundur, erindi sem bar yfirskriftina „Tekist á við tímann – Í Varanasi á Indlandi“.)

Foreldramorgunn á morgun miðvikudag 21. febrúar kl. 10-11:30

Minnum á Foreldramorgunn á morgun, miðvikudag 21. febrúar á milli kl. 10-11:30 í Setrinu, kaffistofurými á 1. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Leikstund fyrir börnin, foreldraspjall og léttar veitingar/kaffi/te.
Foreldrar með ungabörn verið velkomin !