Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 12. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Bára Baldursdóttir, rithöfundur flytur erindi undir yfirskriftinni “Kynlegt stríð. Ástandið í nýju ljósi”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 til 3. des., sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).
Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigskirkju syngur. Organisti er Lenka Mateova. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin!
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 5. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona og málari og Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur flytja erindi undir yfirskriftinni “Rímnaskáldið Sigurður Breiðfjörð”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 5. nóv. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Jóhanna V. Þórhallsdóttir, söngkona og málari og Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur flytja erindi undir yfirskriftinni “Rímnaskáldið Sigurður Breiðfjörð”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Drengjakór Reykjavíkur syngur, stjórnandi er Þorsteinn Freyr Sigurðsson og meðleikari er Laufey Sigrún Haraldsdóttir. Veitingar í safnaðarheimili að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Að lokinni fjölskylduguðsþjónustu stendur sóknarnefnd Háteigskirkju fyrir viðburðinum „Jól í skókassa“ í safnaðarheimili kirkjunnar, sjá tilkynningu hér: https://hateigskirkja.is/jol-i-skokassa-2024-i…/
Næstkomandi sunnudag 3. nóvember kl. 12:20 til 14:30 að lokinni fjölskylduguðsþjónustu mun Háteigskirkja leggja sitt af mörkum fyrir verkefnið Jól í skókassa sem KFUM og KFUK standa fyrir og gengur út á að útbúa jólagjafir handa munaðarlausum börnum í Úkraínu, sjá nánar hér:
Öllum áhugasömum gefst kostur á að koma saman í safnaðarheimili kirkjunnar að lokinni fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 3. nóvember næstkomandi og útbúa gjafir í kassana. Falleg og gefandi samverustund fyrir fjölskyldur og alla sem áhuga hafa. Hver kassi þarf að innihalda amk einn hlut úr hverjum af eftirfarandi fimm flokkum:
1) LEIKFÖNG (t.d. lítill bíll eða dúkka …)
2) SKÓLADÓT (t.d. penni, blýantur …)
3) HREINLÆTISVARA (t.d. tannbursti, sápa …)
4) SÆLGÆTI (t.d. sleikjó, karamellur …)
5) FÖT (t.d. sokkar, húfa …)
Kirkjan útvegar skókassa (þó takmarkað magn svo að gott er að taka kassa með) og merkimiða, gjafapappír, einnig eitthvað af hreinlætisvörum og sælgæti (án endurgjalds) til að setja í kassana. Þátttakendur koma með leikföng, skólavörur, hreinlætisvörur, sælgæti og föt sem hæfa aldri og kyni þeirra barna sem þau ætla að útbúa kassann sinn fyrir.
Efst í hvern kassa þarf að leggja 500-1000 kr. seðil sem er fyrir kostnaði verkefnisins og eru þátttakendur beðnir um að hafa það meðferðis líka. Kirkjan sér um að koma tilbúnum jólakössum til KFUM og KFUK á Íslandi, sem sjá um að koma gjöfunum til barna í Úkraínu.
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun þriðjudag 29. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Árni Hjartarson, jarðfræðingur flytur erindi með yfirskriftinni „Vatnsvígslur og helgir brunnar Guðmundar góða“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur ! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).
Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara næstkomandi þriðjudag 29. okt. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Árni Hjartarson, jarðfræðingur flytur erindi með yfirskriftinni „Vatnsvígslur og helgir brunnar Guðmundar góða“. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur! (Gæðastundir á haustmisseri 2024 eru á þriðjudögum kl. 13:30-15 út nóvember, sjá heildardagskrá GÆÐASTUNDA haustmisseris 2024 hér: https://hateigskirkja.is/gaedastundir/ ).