Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 10. feb. kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild HÍ, flytur erindi undir sem ber yfirskriftina: “Filmuljósmyndun og mótun minninga”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
