GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 28. janúar kl. 13:30 til 15

Minnum á GÆÐASTUND eldri borgara á morgun, þriðjudag 28. janúar kl. 13:30 til 15 í veislusal á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Ásta Valdimarsdóttir, hláturjógakennari og -ambassador, flytur erindi um og kynnir hláturjóga undir yfirskriftinni “Hláturjóga – gleði og vellíðan”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!