Næsta GÆÐASTUND eldri borgara verður næstkomandi þriðjudag 10. nóvember, kl. 13:30 til 15 í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Dr. Terry Gunnell, þjóðfræðingur og prófessor emeritus, flytur erindi sem ber yfirskriftina: “Niðurstöður síðustu þjóðtrúarkönnunar frá 2023”. Að venju verður boðið upp á góðar veitingar. Þátttaka er gjaldlaus (frjáls framlög). Verið hjartanlega velkomin! Hlökkum til að sjá ykkur!
