Bænastund í Háteigskirkju vegna umferðarslyss á Krýsuvíkurvegi

Miðvikudaginn 2. september kl. 18:00 verður opin bænastund í Háteigskirkju til minningar um Benjamín Guðmundsson sem andaðist í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi aðfararnótt mánudagsins 31. ágúst s.l. Umsjón með samverustundinni hefur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, sóknarprestur. Verið öll hjartanlega velkomin.