————————-
Verið hjartanlega velkomin á sýningaropnun á verkum Diddu H Leaman í GALLERÍ GÖNGUM næstkomandi föstudag 15. maí kl. 16-18
Didda H Leaman
Innilega 15.05. -14.06. 2026
Opnun föstudaginn 15. maí, 16.00 -18.00
Gallerí Göng
Háteigsvegi 27-29
105 Reykjavík
Sýningin er opin mán-fös 9-16 og sun 11-12
Á sýningunni eru verk unnin á pappír með bleki, tússi og klippi.
Akrýlmálverk á striga. Þrívíð verk úr pappír sem teiknað er á með tvinna, auk
þess sem blek er málað beint á glervegg ganganna.
Hugsanabúbblur og ský skarast, breiða úr sér og rofna sundur.
Hugsanabúbblur eru ímynduð, teiknuð tákn sem við þekkjum úr
teiknimyndasögum og höfum lært að lesa í. Þar er skilaboðum komið á
framfæri til lesandans um hvað persónur í sögunni eru að hugsa eða hvernig
þeim líður. Ský sjáum við daglega með augunum.
Náttúruleg form og dvalarstaðir undanfarinna ára eru uppspretta, séð með
auga hugans og skynjunarinnar lúta þau eigin lögmálum.
Hugsanamynstur eru skoðuð og samskipti hugsana.
Hvað hugsar þú og hvað hugsa ég?
Hugsum við það sama, eða er þetta ekki hugsun, heldur skynjun eða tilfinning?
Eru ógreinanleg öðruvísi öfl áhrifavaldar sem koma hugmyndum að?
Didda stundaði nám á
Listasviði F.B.
Konstlinja Aalands Folkhögskola
Nýlistadeild M.H.Í.
Post Graduate Painting, Slade School of Fine Art og
M.Art Ed. Kennslufræði Sjónlista, L.H.Í.
Hún hefur verið búsett og dvalið á ýmsum stöðum seinustu áratugi
m.a. London, Nepal, Barselóna, Novi Sad, Hólmavík og Reykjavík
