Sunnudagur 3. maí – Fjórði sunnudagur eftir páska

Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Frumflutt verður nýsamin messa eftir Gunnar Haraldsson sem er útskriftarverk hans úr meistaranámi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. Tónmál verksins er innblásið af sléttsöng og tónlist fyrri alda en það er samið fyrir kór og endurreisnarhljóðfæri. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
(Ljósmyndina tók fermingarbarn í vor.)