Messa kl. 11. Sr. Árni Þór Þórsson, prestur í Breiðholtsprestakalli prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Helgu Soffíu Konráðsdóttur, sóknarpresti. Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Heitt á könnunni, ávaxtasafi og kruðerí í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
