15. desember – Þriðji sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11 og Aðventukvöld kl. 20:
Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á þriðja kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Aðventukvöld kl. 20. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir flytur hugvekju. Prestur er sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Kordía, kór Háteigskirkju og Perlukórinn, barna- og unglingakór Háteigskirkju syngja. Stjórnandi Perlukórsins er Guðný Einarsdóttir. Jón Guðmundsson spilar á flautu. Almennur söngur í bland við kórsöng og talað orð við kertaljós. Verið öll hjartanlega velkomin.
