Annar sunnudagur í aðventu. Messa kl. 11. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kveikt verður á öðru kertinu á aðventukransinum. Kordía, kór Háteigskirkju syngur undir stjórn organistans Erlu Rutar Káradóttur. Barn verður borið til skírnar í messunni. Heitt á könnunni og djús í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
